Í dag byrjaði ég að blogga á nýjum vef sem lofar afar góðu þetta er hið nýja, ferska og heilbrigða samfélag www.miðjan.is
Lesendur eru velkomnir á nýja heimilið http://juljul.midjan.is/ bíð spenntur eftir því að fá ykkur í heimsókn þar. Fyrsta færslan er um nýársgalaveislu á Friðriki V. Ég við þakka Moggabloggsmönnum fyrir góða tíma og lesendum mínum hér fyrir skemmtileg samskipti og vonast til að sem flestir kíki við á nýjum stað. Ég mun áfram setja hér inn innganga að færslum mínum á nýja staðnum, meðan að fastagestir ef svo má að orði komast eru að átta sig á breytingunum. Eins ætla ég smátt og smátt að færa efni héðan yfir á Miðjuna.
Ég þakka kærlega fyrir.
Matur og drykkur | Mánudagur, 25. janúar 2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14 - 16 maí s.l var haldið æfingamót hér á Dalvík í sjóstangveiði fyrir Evrópumótið sem verður haldið hér að ári. Þetta verður svokallað tegundamót, ekki mokveiðimót. Hér á myndinni vinstra megin eru eikarbátarnir Níels Jónsson frá Haug
anesi, sem varð aflahæstur á æfingamótinu og Snorri frá Dalvík í hafnarmynninu rétt eftir að flautað var til leiks. Þar sem að þetta er tegundamót þá byrjuðu þeir að reyna við Marhnút og kola þar, sem að tókst því að einn lítill Marhnútur beit á agnið og nokkrir kolar. Það voru Skotar meðal keppenda og einn úr
þeirra hópi sigraði karlaflokkinn en Sigríður Kjartansdóttir sigraði kvennaflokkinn. Veðrið lék við keppendur báða keppnisdagana, en þess má geta að viku fyrr var hér brjáluð norðan stórhríð af verstu gerð. Úlfar Eysteinsson kokkur á Þremur Frökkum og Yfirkokkur Fiskidag
sins mikla var annar af tveimur bryggjustjórum mótsins, hann á hús á Siglufirði og þurfti að skreppa þangað með dót og ég skellti mér með honum. Við komum við í fiskbúðinni á Sigló og það var skemmtileg upplifun og ég upplifi mig pínulítið eins og ég væri í Genoa á Ítalíu. Fiskbúðin er í kjallara á gömlu húsi, lítil þröng , krúttle
g en skemmtileg aðstaða. Fyrst kemur þú inn þar sem að er afgreiðsluborð með ferskum fiski, hakki og fleiru, svo þröngur gangur og inn af honum lítið skot þar sem hægt er að setjast inn og snæða sviðkjamma og kartöflustöppu. Þar fyrir framan hanga síðan uppi um 20 kaffikönnur merktum ýmsum nöfnum, þarna eiga heppnir Siglfirðingar merkta kaffikönnu og droppa við í heimilislegri fiskbúðinni til að fá sér kaffi. Á myndinni hér til hliðar má sjá Úlfar og Ella Lúðubana sitja í matarskotinu góða.
S.l fimmtudag (Uppstigningardag) vorum við með matarmarkað á
pallinum hjá okkur. Við vorum með Sítrónusmjör, rauðlaukssultu, eplakanilssultu, chillilaukmarineringu, léttsaltaðan saltfisk, hnakka og sporða, Sushi, saltfiskrétt í eldföstum mótum sem fylgdu með, fiskisúpu, grill
pylsur Friðriks V.á Muurikka pönnu og fleira. Markaðurinn gekk alveg hreint ljómandi vel og það er ljóst að við verðum með fleiri markaði. Í dag laugardag kom loksins smá væta úr lofti ....gott fyrir gróðurinn og þá er líka gott að bardúsa innandyra og við nýttum okkur það fyrir næsta markað, við gerðum eina uppskrift af sítrónusmjörinu góða sem seldist upp á stuttum tíma á markaðinum o
g að auki nýja vöru grillaðar paprikur í hvítlauksolíu.
Matur og drykkur | Laugardagur, 23. maí 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í þessari færslu koma
fyrir sviðakjammar í afmælisútfærslu, guðdómlegt Belgískt konfekt, japanskt viskí, ferming á faraldsfæti og fleira ætilegt.
í byrjun maí var okkur boðið í fermingu eða rétta sagt annan í fermingu. Hann Sturla Holm Skúlason , sonur Lindu Holm og Skúla Péturssonar veiðimanns og villbráðaeldmanne
skusnillings hélt aukaveislu fyrir norðan í "Sumarhöllinni" að Ásvegi hjá Guðnýju og Sigga. Að sjálfsögðu var villibráð sem að þeir feðgar höfðu veitt og eldað. Hér sjáum við matseðilinn, þið getið klikkað á myndina tvisvar sinnum og þá fáið þið hana stærri og eigið að geta lesið seðilinn. Þetta var afar ljúffengt og á
hugaverðast þótti mér gæsasúpan, bragð og áferð var einhvern veginn hárrétt og því telst hún að mínu mati vera "gæsasúpan", marineruð gæsafóörn, afar þéttir bitar, bragðið himneskt og kraftmikið og síðan voru það lundahjörtun sem búið var að handplokka himnuna af og þau voru síðan flamberuð, afar ljúffeng - bráðin greinilega fullnýtt.
Eftir að fermingarveislunni var lokið færði Sigurður húsbóndi okkur eitt það besta konfekt sem ég hef á ævi minni bragðað, hann var nýkominn heim frá Belgíu og keypti þar nýunnið handgert konfekt sem betur fer
var það með frekar stuttan geymslutíma og því var ekki eftir neinu að bíða en að njóta þess strax. Það var bragðgott, fallegt og samsetningin góð. Ég fann heimasíðuna þeirra www.godiva.com
. Sigurður húsbóndi lumaði á öðru sem hann deildi síðan með okkur, en hann byrjaði ekki fyrir svo löngu að safna viskíi og nú var farið að leyfa okkur að smakka. Ég er ekki mikill viskí maður en það var mjög gaman að dreypa örlítið á nokkrum tegundum og velta fræðunum fyrir sér og é
g er ekki frá því að ég sé mun nær því að fá áhuga á þessu heldur en ekki
Nýjasta flaskan hans, sem að hann opnaði þarna um kvöldið var 10 ára Single malt frá Japan. Ég sem hélt að góð viskí kæmu bara frá Skotlandi
en Japanir þykja víst góðir í þessu og k
emur engum á óvart þegar matur og drykkir eiga í hlut. Síðan komu Bowmore,Highland Park, Johnny Walker, Laprrohaig og fleira gott. í lokin fengum við að smakka Lettneskt og Thailenskt og óbragðið af því finn ég enn einhversstaðar í innstu bragðkirtlum. 12. maí s.l átti Gréta mín afmæli og ég ákvað að elda eitthvað skemmtilegt og síðan var smá eurovison stemmari á eftir. Matseðillinn var grillaður humar, sviðakjammar
í klípu, og léttsaltaðar saltfiskur með rauðri sósu , brauð og meðlæti. Með þessu drukkum við afar gott lífrænt ræktað hvítvín. Sviðin komu verulega á óvart og þau verð örugglega gerð aftur. Ég setti í skál frekar smátt skorinn, venjulegan og skallottlauk,venjulegar og sætar kartöflur, ferskt úr ræktuninni garðablóðberg og timian, smá olíu og salt..blandaði þessu vel saman og lét það bíða u
m stund. Bjó til umslög úr álpappír setti aðeins af blöndunni í botninn og sviðakjammann á og svo ágætlega af blöndunni ofan á hann, lokaði umslaginu og setti aukalag af álpappír utan um, inn í 200 gr heitan ofn í 2 tíma og kláraði það svo á grillinu í 30 mín eða svo. Saltfiskurinn var eitt gott flak sett í eldfast mót sósunni hellt yfir og inn í ofn í 15 mín á 180 gr ) Léttsaltaði fiskurinn þarf minni tíma í ofni
en venjulegur saltfiskur) Sósan: 1 krukka Bruscettina with chilli frá Sacla, 2 skallottlaukar, 5 hvítlauksgeirar, 1/4 bolli svartar olífur og fersk basilika, 1/2 bolli brie ostur og einn bolli rifinn eða smátt skorinn parmesanostur. Laukarnir og ólífurnar steiktar í potti með örlítilli olíu, því næst er innihaldi krukkunnar og ostunum skellt útí hitað að suðu en hrært stöðugt í á meðan. Með saltfiskinum var brauð og lime og vorlauksgrjón, venjuleg grjón soðin, vorlaukur smátt skorinn settur út í að
suðu lokinni og lime safi eftir smekk. Í eftirrétt var ferskur ananas (Undir áhrifum frá Jamie Oliver) Ananasinn er skorinn í þunnar lengjur og settur á fat, fersk mynta og sykur marin í morteli eða í matvinnsluvél og þessu dreift yfir og látíð bíða í ísskáp um stund. Sumum finnst gott að finna fyrir sykrinum og öðrum ekki og biðtíminn ætti þá að miðast við það. Að lokum tók ég gríska jógúrt hálfa dollu, ca. msk af lime safa og 1 tsk agave sýróp, hrærði saman og blöndunni er dassað yfir ananasinn áður en að hann er borinn fram. Gestir sitja við fatið og allir borða beint af því með fingrunum, ég mæli með þessum rétti á pallinn í sumar, hann er ferskur og lúmskt góður.
Matur og drykkur | Laugardagur, 16. maí 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrir nokkru prófaði ég deig, uppskrift frá Nönnu Rögnvaldsdóttur http://nannar.blogspot.com/ og mér líkaði það mjög vel. Ég bakaði fjórum sinnum úr því. Ég er að má segja nýgræðingur í bakstri sérstakleg brauðbakstri og þetta deig kveikir í mér og það er gott að æfa sig á því, svona bakstur þarf þolinmæði og ást. Eins og má sjá á myndinni hér vinstra megin lyfti það sér mjög vel.
Hin myndin er af grænmetispizzu sem ég skellti á í morgunmat, þægilegt þegar deigið er tilbúið í skápnum, bara klípa af því og skella í bollur eða hvað sem er. því meira sem ég les og skoða af því sem að Nanna gerir þá er ljóst að það er erfitt að halda aftur af tilfinningunum...já matarástin er snúin 
.
Reykt parmaskinka.Guðmundur í 24 ( Ég á heima í 13) skellti sér um daginn í vinnuferð til Portúgal og kom heim með ( Það kallast að smygla) dágóðan bita af reyktri Parmaskinku...mmmm. Hann vær svo vinsamlegur að breggggða sér yfir í 13 og leyfa okkur að njóta smyglvarningsins, og það var sannarlega áhættunnar virði....eins og maðurinn sagði mikið gott og mikið gaman.
Ísskápa og frystikistugrams á laugardegi...Þessi laugardagur var einn af þessum dögum þar sem að ekki var alveg búið að ákveða hvað í matinn skyldi hafa. Ég tók kjúklingaleggi sem ég hafði keypt á "Ofurtilboði" í búðinni upp úr frystikistunni og þegar leið að matarundirbúningstíma fór ég rúnt um ísskápinn og týndi út úr honum lauk,kartöflur, sætar kartöflur, gulrætur, sykurbaunir,hvítlauk
, engifer, sveppi og vorlauk sem ég skar í hæfilega bita. Því næst brúnaði ég kjúklinginn örlítið í olíu á pönnu og tók svo eldfast mót og þakti það með álpappír, setti í botninn, lakkrísrót, kóríanderfræ, soja og worshestersósu, ásamt garðablóðbergi. Ég setti síðan kjúllan og allt sem ég skar niður, ásamt matskeið af púðursykri, salti og pipar...ásamt meira af því sem ég setti í botninn í skál og blandaði vel saman, setti í mótið og vel af álpappír yfir, þannig að heildin varð að böggli sem passaði í eldfasta mótið.
Næsta færsla - Fermingarveisla á faraldsfæti.
Matur og drykkur | Þriðjudagur, 5. maí 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Lundinn er frábær, Grímseyingar líka ....já og Vestamannaeyingar ekki minni snillingar...kannski ætti að koma slatta af þessu jákvæða, kröftuga og umfram allt skemmtilega fólki á þing...en nóg um það. Lundinn er mjög gott hráefni til eldunar og það er svo sannarlega hægt að elda hann á marga vegu. Í tilefni af komu lundans í Grímsey set ég her inn uppskrift..njótið.
Hugsið um hvern bita í salatinu sem gómsætan og vel gerðan munnbita, ég hugsa oft að ég sé handverksmaður og hver biti sé útskorinn og úthugsaður það á jafnt við um það sem er eldað eða skorið niður.
4 - 6 vel snyrtar lundabringur300 gr humar eða skötuselur
1 box jarðaber
1 grein græn vínber
1 bréf beikon
1 bréf El toro nautavöðvi
1 bátur vatnsmelóna
¼ iceberg höfuð
½ gul paprika
1 poki lambasalat1 bóndabrie - Geitabrie væri spari..
¼ poki rucola
¼ krukka fetaostur í kryddlegi frá Mjólkuhandfylli af pistasíuhnetum2 ferskjar fíkjur
2 hvítlauksgeirarMaldon eða annað flögusalt
Teryaki marinade sósa
balsamik síróp
sítrónu eða truffluolía
smjör
hlynsíróp Munið að skola grænmeti og ber vel úr köldu vatni.
Leggið bringurnar í teryaki marinade í 2 tíma. Brúnið þær báðum megin á pönnu upp úr smjöri, takið strax af og vefjið vel inn í álpappír, látið bíða í 20 mín á eldhúsbekknum. Skerið síðan í þunnar hæfilegar
sneiðar og látíð kólna. Stökksteikið beikonið á pönnu og þerrið á eldhúsbréfi, hver sneið fer í 3 – 4 bita, skerið humar eða skötusel í litla bita, pressið hvítlaukinn á pönnu með smjöri og aðeins af flögusalti, veltið fisknum upp úr þessu í 1 mín, takið af og kælið, skerið bóndabrie í passlegar lengjur og rúllið El toro nautavöðvanum utan um og skerið í 2 bita, skerið vínberin og jarðaberin í tvo til 3 bita eftir stærð berjanna, skerið vatnsmelónubitana í jafn stóra bita, skerið paprikuna langsum í hæfilega bita. Hitið pönnu og látíð handfylli af pistasíuhnetum á pönnu og ristið, takið af og setjið á disk og hellið hlynsírópi yfir, kælið.
Veljið fallega stóra aflanga skál eða fat, hafið allt hráefnið tilbúið fyrir framan ykkur og byrjið að raða smekklega á. Það má segja að þetta séu 3 lög af hráefni. Geymið fallegustu bitana til að hafa efst. Inn á milli má dreipa aðeins af sítrónu eða trufflu olíunni, en alls ekki of mikið sama má segja um hnífsodd af Maldon salti svona einu sinni og að lokum setjið nokkra dropa af balsamik sírópi efst. Þegar þið setjið fetaost dreipið þá aðeins af olíunni með. Skerið fíkjurnar og setjið efst eða í hornin til skreytingar.
|
Lundinn kominn í Grímsey |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Matur og drykkur | Föstudagur, 17. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Matur og drykkur | Föstudagur, 17. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Matur og drykkur | Miðvikudagur, 15. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Matur og drykkur | Mánudagur, 13. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Matur og drykkur | Föstudagur, 10. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Matur og drykkur | Fimmtudagur, 9. apríl 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Matarsíða áhugamannsins
Færsluflokkar
Nýjustu færslur
- Matarupplifun í byrjun árs - Nýtt heimili.
- Matarmarkaðsstemmning, krúttleg fiskbúð á Sigló, og æfingamót...
- Ferming á faraldsfæti, kjammar í klípu, guðdómlegt konfekt og...
- Dásamlegt deig - Skemmtileg skinka - Krambúleraður kjúlli.
- Lundasalat á flugi......eyjapeyjar á þing....
- Camembert með beikoni og grískri jógurt
- Heill......og fallegur Humar...
- Örlítið um páskamatinn og ný matarsíða
- Aðventuboðsfærsla á deginum langa....loksins
- Skírdags kryddbrauðrasp
- Súpuskálar..smokkfiskur..sushi..saltfiskur og saumó
- Rússneskar pönnukökur og tengdó kom óvænt í heimsókn
- Eldað fyrir forsetann óvænt.....við sérstakar aðstæður
- Súkkulaðikaka með reyktri papriku.....og fleira.
- Örlítið matarboð - Höbbðingjar í heimsókn
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
Feb. 2010
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 |
Greinar og skrif
Tenglar
Matarsíður
- Matarlist Frábær vefur
- Berjavinir Allt um villt ber í nátturu íslands
- Slow food Samtök framtíðarinnar
- Matardagbók Ragnars Freys Snilldar síða
- Matur úr héraði
- Fylgifiskar Ein af mínum uppáhaldsbúðum / stöðum
- Freisting Góður vefur
- Ostabúðin Skólavörðustíg Ein góð
- Íslenskt grænmeti Toppaðu þetta
- Súkkulaðimeistarinn Hafliði Ragnarsson
- Matarsetur Matur saga menning
Vínsíður
- Vín og matur Skemmtileg síða um vín.....og mat
- Vín og matur blogg Vínkeðjan og fl skemmtilegt
- Vínbúðin ÁTVR
- Vínskólinn Vínskólinn
- Vínsíða Eiríks Orra Elsta vínsíða landsins
Veitingastaðir
- Friðrik V Einn besti veitingastaður landsins
- Þrír Frakkar Úlfar er snillingur
- Frábært kaffihús Flatbrauðið hans Þórólfs frá Lundi er eðall
- Halastjarnan Ohhhh á þennan eftir
- Strikið Flottur staður
- Greifinn Saltfiskpizzan góða
- Rub 23 Fyrrum Karolína
Tæki og tól
- Stjarnan glermunir Gerir matinn fallegri
- Fastus Heildverslun með tæki og tól
Ýmislegt
- julli.is Mín síða
- Effekt Þórhallur hönnuður
- Dalvík Staðurinn
- Fiskidagurinn mikli Stærsta matarhátíðin
- Hellevad gengið Fimmtugi bróðirinn í DK
Uppskriftir
- Matseld Fullt af uppskriftum
- Uppskriftavefurinn Uppskriftir
- Amma gamla á netinu Uppskriftir
- Kjarnafæði Kjarnafæðis uppskriftir
- Sjávarréttir Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
- Hornafjarðarhumar Uppskriftir
Spurt er
Bloggvinir
- Atli Rúnar Halldórsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Pétur Guðjónsson
- Fiddi Fönk
- Lárus Vilhjálmsson
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Elva Ýr Kristjánsdóttir
- Doddi - Þorsteinn G. Jónsson
- Auður H Ingólfsdóttir
- Einar Sveinbjörnsson
- Pétur Björgvin
- Jónas Björgvin Antonsson
- Hallgrímur Óskarsson
- Þórey Dögg Jónsdóttir
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Jónína Dúadóttir
- Kafteinninn
- Hlynur Hallsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Snorri Sturluson
- Anna Ólafsdóttir (anno)
- Helgan
- Ómar Ragnarsson
- Bjarnveig Ingvadóttir
- Sverrir Þorleifsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Ásgeir R. Helgason
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Árni Björn Helgason
- Gunna-Polly
- Þórður Ingi Bjarnason
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Sigríður Jónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Rakel Rós Geirsdóttir
- Vala Dögg
- Blúshátíð í Reykjavík
- Báran
- Ómar Pétursson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Guðjón H Finnbogason
- Kristín Einarsdóttir
- Íris Hauksdóttir
- Brynja Svanhvít Lúðvíksdóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Pálmi Guðmundsson
- Jónas Viðar
- Eyrún Elva
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- Brynja skordal
- Nonni
- Goggi
- Hörður Hermann Valsson
- Hrannar Hafberg
- Guðrún Þorleifs
- Sigurlaug B. Gröndal
- Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
- Kristberg Snjólfsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Ása Björg
- Anna Guðný
- Haraldur Davíðsson
- Ingunn Magnúsdóttir
- Gerður Pálma
- Brynjar Davíðsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Unnur Sólrún
- Jakob S Jónsson
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Trausti Traustason




